Wilfred Owen

Wilfred Owen (1893-1918) var aðeins 25 ára gamall þegar hann féll í blálok fyrri heimsstyrjaldarinnar. Hann telst samt með höfuðskáldum Englendinga við upphaf síðustu aldar og er einkum þekktur fyrir ljóð sem hann orti um stríðið. Hér er að ofan tilraun til að þýða eitt af þeim og fyrir neðan er ljóðið á frummálinu.


Dæmisagan um öldunginn og æskuna

Abraham til eldiviðar klauf
eins og þurfti af sprekum, glóð og hníf
hann einnig tók og áfram gengu þeir
uns Ísak sagði við hann: Faðir minn,
við höfum þarna járn og eld og allt
í okkar brennifórn en vantar lamb.
Þá Abraham með belti og þvengjum batt
barnið og við skotgrafirnar hlóð
hann vígi sín og hnífnum bitra brá.
Svo birtist engill, kvað við himnesk rödd:
Legð' ei hendur á hinn unga svein,
óþarft er að vinna honum grand;
Hrúti drambsins fremur fórna skalt
sem fastur er með horn sín krækt við tré.

Samt drap hann soninn - síðan fleiri börn
og evrópsk æska hálf að velli hné.